Nýr Suzuki Vitara með 5 stjörnur

Hinn nýi Suzuki Vitara.
Hinn nýi Suzuki Vitara.

Suzuki Vitara er fyrsti jepplingurinn sem fær fullt hús stiga, 5 stjörnur, í árekstrarprófun Euro NCAP á þessu ári.

Niðurstöðurnar voru ótvíræðar á öllum sviðum prófunarinnar og þær setja nýjan Vitara á stall yfir öruggustu bílana í þessu flokki.

Suzuki Vitara fékk hæstu einkunn í öllum fjórum helstu prófunarþáttunum, þ.e. öryggi farþega, öryggi barnungra farþega, öryggi annarra vegfarenda og akstursstoðkerfi sem stuðla að auknu öryggi. Kröfurnar sem þarf að uppfylla á þessu sviði eru strangari en nokkru sinni áður.

Fimm stjörnur eru hámarkseinkunn og einungis þau ökutæki sem uppfylla hámarksvörn fyrir farþega og vegfarendur hljóta hana.

Einn helsti öryggisþátturinn í nýjum Vitara er svokallað „Total Effective Control Technology“ sem felur í sér samspil aflögunarsvæðis fyrir farþegarými og léttleika öktækisins. Mikil notkun á hástyrktarstáli í yfirbyggingu Vitara og tölvuvædd
verkfræðiútfærsla í hönnun stuðla einmitt að framúrskarandi gildum á þessu sviði.

Vitara kemur m.a. með sjö öryggispúðum. Prófanir Euro NCAP, sem er leiðandi stofnun í Evrópu á sviði öryggismála ökutækja, leiðir í ljós að hönnun framsæta og hnakkapúða veita fyrirtaks vernd gegn hálshnykkjum við aftanákeyrslur.

Nýr Suzuki Vitara er væntanlegur á markað á Íslandi með  haustinu.

mbl.is