Opel og Chevrolet til sýnis í Eyjum

Opel fjölskyldan verður á sínum stað í Eyjum.
Opel fjölskyldan verður á sínum stað í Eyjum.

Eyjamenn fá að berja augum glæsilegan bílaflota frá frá Opel og Chevrolet um helgina.
Bílabúð Benna heldur bílasýningu við Nethamra á laugardag og sunnudag, 2. og 3. maí

Fulltrúar Opel á sýningunni eru flaggskipið Insignia, sportjeppinn Mokka, Astra fjögurra dyra og Astra fimm dyra, ásamt nýjustu kynslóðinni af Corsa og Adam.

Frá Chevrolet verður tjaldað Captiva fjölskyldujeppanum og Spark sem notið hafa mikilla vinsælda meðal landsmanna.

Bílasýningin verður haldin við bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, Garðavegi 15, frá klukkan 11 til 16 á laugardag og 11 til 14 á sunnudag. Tækifæri gefst til reynsluaksturs.

mbl.is