59,2% aukning í nýskráningum

Mikill kippur hljóp í bílasöluna í apríl miðað við sama …
Mikill kippur hljóp í bílasöluna í apríl miðað við sama mánuð í fyrra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Sala á nýjum fólksbílum í nýliðnum aprílmánuði jókst um 91% miðað við apríl í fyrra. Nýskráðir fólksbílar í mánuðinum voru 1305 eintök á móti 684 í sama mánuði 2014.

Þar af voru 777 bílaleigubílar eða 59% af heildarnýskráningum fólksbíla í mánuðinum. Nemur aukningin í nýskráningum frá í fyrra 621 bíl.

Bílaleigubílar eru stór hluti af heildar nýskráningum fólksbíla á vormánuðum og vega hátt í heildinni. „Hins vegar hefur bílasala tekið vel við sér það sem af er árinu og er það von okkar að sú þróun haldi áfram,“ segir  Özur Lárusson framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins.

mbl.is