Bílaleigurnar birgja sig upp fyrr en áður

Sala bílaumboðanna í nýliðnum apríl.
Sala bílaumboðanna í nýliðnum apríl.

Sala bifreiðaumboðanna í aprílmánuði ber greinileg merki sívaxandi ferðamannastraums til landsins og lengra ferðamannatímabils árið um kring.

Alls voru skráðir 1433 bílar í fólks- og sendibílaflokki í apríl og keyptu bílaleigurnar 777 bíla, eða 54% flotans.

Alls voru 370 bílar frá BL skráðir í mánuðinum, 153 bílum meira en í mars, að því er fram kemur í tilkynningu frá bílaumboðinu.

Alls hefur BL selt 943 bíla það sem af er árinu. Það er 380 bílum meira en á sama tímabili 2014 og er markaðshlutdeild fyrirtækisins á árinu í heild nú 23,7%, þar af 25,8% í apríl. Án sölu til bílaleiga er markaðshlutdeild BL það sem af er ári 25,1%.

mbl.is