Bílar frá Heklu sýndir á Akureyri

Audi A3 e-tron er einn þeirra bíla sem verður á …
Audi A3 e-tron er einn þeirra bíla sem verður á sýningunni.

Bílasala Hölds efnir ásamt bílaumboðinu Heklu til bílasýningar að Þórsstígi 2 á Akureyri milli klukkan 12 og 16 á morgun, laugardag. Þar verður til sýnis úrval margverðlaunaðra bíla frá Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi. 

Audi A3 e-tron er einn þeirra bíla sem verður á sýningunni. „Það er Audi A3 e-tron sem sameinar á nýjan hátt helstu kosti raf- og bensínbíla þar sem raforkan ein og sér dugar í flestar ferðir innanbæjar og sparneytin bensínvél kemur sér vel í lengri ferðum,“ segir Jóhann Ingi Magnússon, sölustjóri Audi, í tilkynningu frá Heklu.

Skoda Fabia verður einnig kynntur um helgina. „Á sama tíma og við erum að sýna bílinn fyrir norðan verður kynning á honum fyrir sunnan. Við erum mjög spennt fyrir bílnum enda gríðarlega flottur og hefur fengið frábærar viðtökur. Hann verður fáanlegur með sparneytnum bensín- og dísil vélum auk þess sem hann býður upp á skemmtilegan tæknibúnað. Skoda Fabia verður einnig fáanlegur í combi-útfærslu með alvöru skottplássi.“ segir Valgeir Erlendsson, vörustjóri Skoda hjá Heklu.

Volkswagen California er vinsæll ferða- og húsbíll sem verður hjá Höldi um helgina. „Það geta fjórir fullorðnir sofið í honum, hann er útbúinn með eldhúsi, tveimur gashelluborðum og ísskáp. Hann er líka með frábærlega hönnuðum innréttingum, markísu og innfelldum borðum. California er auðveldlega hægt að nýta allan ársins hring og hann getur vel nýst í daglegum akstri í stað jeppa,“ segir Ívar Þór Sigþórsson, sölustjóri Volkswagen atvinnubíla hjá Heklu.

mbl.is