Síðustu daga hefur Honda verið að prófa aðra frumgerð af hinum umtalaða NSX-sportbíl í Nürburgring brautinni í Þýskalandi.
Víst er að ekki verður tilkynnt um nein met þótt hratt muni bíllinn fara því opinberlega hefur verið lagt blátt bann við frekari tilraunum til metasláttu í brautinni frægu. Í því skyni hefur m.a. verið settur hámarkshraði á tilteknum brautarköflum.
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Honda NSX á ferð í brautinni. Þótt bíllinn hafi verið frumsýndur fyrir nokkrum mánuðum er hann samt í felulitum hér.
Það er um að gera að kveikja á hátölurunum og skrúfa hátt í þeim til að heyra rammöflulg vélarhljóð bílsins.