Vilja hjólabæta Ísland

Hjólafólk á ekki að þurfa að vera nakið til að …
Hjólafólk á ekki að þurfa að vera nakið til að tekið sé eftir því.

Alþjóðlega umferðaröryggisátakið Hjól í huga hefur teygt anga sína til Íslands en það hefst hér á landi nú um mánaðarmótin. Að því stendur Félag íslenskra bifreiðaeigend (FÍB) í samstarfi við verkefnið Hjólabætum Ísland.

Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir og stjórnarmaður í FÍB fylgdi átakinu úr hlaði og kynnti nýtt myndband frá FÍB á blaðamannafundi í dag.

Meginmarkmið átaksins Hjól í huga er að efla vitund ökumanna um hjólafólkið í umferðinni – hina óvörðu vegfarendur á reiðhjólum og vélhjólum. Myndbandið sýnir mann á reiðhjóli sem allir taka strax eftir vegna þess að hann er nakinn. „Maður á hjóli á ekki að þurfa að vera nakinn til að aðrir vegfarendur taki eftir honum. En nektin undirstrikar jafnframt  hversu viðkvæm hin óvarða manneskja er í umferðinni og hversu lítið má út af bera til að hún verði fyrir líkams- eða jafnvel fjörtjóni. Þetta skyldu ökumenn hafa í huga, en líka og ekki síður hjólreiðamennirnir sjálfir,“ segir í tilkynningu frá FÍB.

Myndbandið verður sýnt á næstunni á íslenskum sjónvarpsstöðvum. Hægt verður að nálgast það á heimasíðu og facebook-síðu FÍB. Jafnframt eru komnir í dreifingu 50 þúsund litlir gulir sjálflímandi viðvörunarþríhyrningar til að líma á baksýnisspegla bíla eða annarsstaðar í sjónsviði ökumanna til að minna hina akandi á að hafa hjólin í huga. Fyrstu límmiðarnir sem verða settir í bíla á Íslandi verða límdir í þá í lok fundarins.

Hugmynd vegaþjónustumanns

Upphaflega fæddist hugmyndin að átakinu hjá breskum vegaþjónustutmanni, sarfsmanni AA, hins breska systurfélags FÍB. Vegaþjónustumaðurinn fékk hugmyndina að átakinu eftir að mótorhjólahjólamaður, kunningi hans, hafði látið lífið í umferðarslysi. AA stóð síðan að fyrsta Think Bike! umferðarátakinu sem hófst í marsmánuði í fyrra. Átakið vakta mikla athygli í Bretlandi og í framhaldinu tóku heimssamtök bifreiðaeigendafélaga, FIA hugmyndina upp á sína arma og styðja við Think Bike! herferðir um allan heim.

Daninn Jacob Bangsgaard er framkvæmdastjóri FIA í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku. Hann segir að Hjól í huga (Think Bike) átakið sé einstakt að því leyti hversu vel það nær að skila hinum mikilvæga boðskap sínum til almennings með góðri blöndu kímni, einfaldleika og alvöru. Það minni ökumenn á að muna alltaf eftir hinum viðkvæmu vegfarendum í umferðinni, ekki síst í þéttri umferð miðborganna þar sem allt að þriðjungur vegfarenda eru á ferðinni á reiðhjólum og vélhjólum.

Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir og stjórnarmaður í FÍB fylgdi …
Kristín Sigurðardóttir slysa- og bráðalæknir og stjórnarmaður í FÍB fylgdi átakinu úr hlaði.
mbl.is