Hér er ekkert máttleysi á ferð

Sæmilega heyrist í keppnisbílum sólarhringskappakstursins í Le Mans í Frakklandi.
Sæmilega heyrist í keppnisbílum sólarhringskappakstursins í Le Mans í Frakklandi. mbl.is/afp

Í augum flestra áhugamanna um kappakstur skiptir máli hversu kraftmikil hljóðin og óhljóðin frá keppnisbílunum eru.

Máttlaus vélarhljóð eiga ekki upp á pallborðið og höfðu umkvartanir áhugamanna og fjölmiðla um óburðug hljóð keppnisbíla í formúlu-1 í fyrra þær afleiðingar að meira heyrist úr bílunum í ár og enn frekar á að betrumbæta þar úr á næstu árum.

Meðfylgjandi myndskeið ætti að gleðja lesendur en þar er að finna vænan skammt af kraftmiklum vélarhljóðum, í heilar 20 mínútur.

mbl.is