69,8% aukning nýskráninga í ágúst

Nýir bílar bíða kaupenda í Sundahöfn.
Nýir bílar bíða kaupenda í Sundahöfn. mbl.is/Styrmir Kári

Sala á nýjum fólksbílum í nýliðnum ágústmánuði jókst um 69,8% miðað við sama mánuð í fyrra.

Voru nýskráðir 842 bílar í ágúst á móti 496 í sama mánuði í fyrra, aukning um 346 bíla.

Frá áramótum til ágústloka hefur nýskráningum fjölgað um 41,7% miðað við sama tímabil 2014. Samtals hafa verið nýskráðir 10.794 fólksbílar frá áramótum.

Aukningi í ágúst er aðallega til einstaklinga og fyrirtækja en búið er að afgreiða megnið af bílaleigubílum sem afgreiddir verða á árinu.

mbl.is