Nýr Avensis frumsýndur

Toyota Avensis hefur tekið breytingum.
Toyota Avensis hefur tekið breytingum.

Toyota frumsýnir nýjan Avensis um helgina en umboðið efnir á morgun, laugardaginn 5. september, til sinnar fyrstu bílasýningar í haust.

Opið verður hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni í Garðabæ, í Reykjanesbæ á Akureyri og Selfossi frá kl. 12 – 16.

Avensis hinn nýi hefur breyst töluvert frá þeirri kynslóð sem hann er að leysa af hólmi.  Þessi vinsæli fjölskyldubíll skartar sportlegu útliti en við hönnun bílsins var í öllu tekið tillit til þæginda farþega og ökumanns. Öll innrétting bílsins er ný og er hann nú m.a. búinn 8“ margmiðlunarskjá.

Avensis fæst bæði með nýrri dísil- og bensínvél og kostar frá 3.970.000 krónur.

Toyota Avensis var hannaður, þróaður og smíðaður í Evrópu. Á götum álfunnar hafa komið rúmlega 1,7 milljón eintaka af þremur kynslóðum bílsins frá því honum var hleypt af stokkum seint á árinu 1997. 


 

mbl.is