Rafbílar yfir milljónina

Vinsælasti rafbíllinn. Nissan Leaf í óvenjulegu útliti á bílasýningunni sem …
Vinsælasti rafbíllinn. Nissan Leaf í óvenjulegu útliti á bílasýningunni sem nú stendur yfir í Frankfurt. Hefur yfirbyggingin verið sniðin af að hálfu leyti til að sýna grind bílsins, uppbyggingu og aflrás. mbl.is/afp

Rafbílar hafa náð markverðum og mikilvægum áfanga, en hann er sá að milljónasti rafbíllinn er kominn á götuna. Sá söluhæsti er Nissan Leaf.

Það þarf ekki að fara nema áratug aftur í tímann en í þá daga var rafbíllinn frekar framandleg hugmynd og þótti framtíðarmúsík fyrst og fremst. Öflug hagsmunasamtök á borð við olíufyrirtæki gerðu sitt besta til að koma í veg fyrir að þeir næðu fótfestu.

En ljóst má vera að menn sjá ekki framtíðina fyrir sér nema að óverulegu leyti því það telst til mikilla tíðinda í dag, að svo margir rafbílar skuli komnir á götuna, og það á tiltölulega stuttum tíma.

Til marks um hraða þróunarinnar - og kannski það sem koma skal - þá seldist helmingur milljónarinnar á síðustu 14 mánuðum. Stærsti markaðurinn fyrir rafbíla er í Evrópu. Þriðjungur bílanna hefur verið seldur í Bandaríkjunum, skerfur Kína er 15% og Japans 12%.

Af bílunum eru 62% alrafbílar og 38% tengiltvinnbílar, en tíu vinsælustu rafbílarnir munu hafa selst sem næst neðangreindum tölum verður komið:

    Nissan Leaf (200.000)
    Chevrolet Volt (100.000)
    Tesla Model S (85.000)
    Toyota Prius (74.000)
    Mitsubishi Outlander PHEV (70.000)
    Mitsubishi i-MIEV (50.000)
    BYD Qin (38.900)
    BMW i3 (31.600)
    Renault Zoe (31.400)
    Ford Fusion SE Energi (24.100)

mbl.is