Tíunda og síðasta kynslóðin

Mistubishi Lance Evo Final Edition.
Mistubishi Lance Evo Final Edition.

Mitsubishi hefur ýtt úr vör tíundu kynslóðinni af Lancer Evolution og þar sem þetta er síðasta kynslóðin sem framleidd verður hefur hún fengið viðaukann Final Edition við módelheitið.

Lancer Evolution er frumherji í flokki fjögurra dyra sportbíla og til að kveðja þennan vinsæla og dáða bíl með stæl hefur vélarafl hans verið aukið í 303 hestöfl. Aðeins munu 1.600 sérlega númeruð eintök verða smíðuð af bílnum.

Final Edition Evos verða fáanlegir í fjórum litum, perluhvítum lit, rallírauðum, gráum og bláum. Eintak af bílnum mun kosta 37.995 dollara í Bandaríkjunum. 



Módelgerðin mun ekki leyna sér.
Módelgerðin mun ekki leyna sér.
Mivec-vélin verður 303 hestafla.
Mivec-vélin verður 303 hestafla.
mbl.is