Enn af unaði og munaði í Frankfurt

Eins og komið var að í Bílablaði Morgunblaðsins þann 22. október sl. er heldur meiri völlur á bílaframleiðendum þessi misserin en verið hefur um alllanga hríð. Liðin er sú tíð að framleiðendur keppi einvörðungu á grundvelli verðs, eldsneytiseyðslu og hagkvæmni og lúxusinn síðan 2007 er snúinn aftur og í þetta sinn með liðsauka.

Vissulega er horft í tölur um t.d. eldsneytiseyðslu og kolefnisútblástur, nema hvað, en það er ljóst að framleiðendur telja kaupendur í auknum mæli horfa á aðra hluti líka, og þá meinum við hestöfl, tog, aukabúnað og verð; til hvers að aka um á rándýrum bíl ef enginn annar veit hvað bíllinn kostar?

Hér skal skautað yfir nokkra í viðbót af þeim glæsivögnum sem fyrir augu bar á sýningunni.

Veyron er dauður – lengi lifi Vision

Best að byrja bara á því allra geggjaðasta. Franski ofurbílaframleiðandinn Bugatti svipti nýverið hulunni af Bugatti Veyron Finale og setti þar með punkt við framleiðslu þessa magnaða bíls sem toppað hefur lista hraðskreiðra ofurbíla síðan hann kom á markaðinn árið 2005. Bílaáhugamenn og vongóðir milljarðamæringar geta jafnað sig á fráhvörfunum því Bugatti kynnti loks áþreifanlegan hugmyndabíl sem felur í sér einhverja vísbendingu um arftaka Veyron. Hugmyndabíllinn nefnist Bugatti Vision Gran Turismo og er í meira lagi óárennilegt skrímsli, alsett vindskeiðum og loftinntökum. Ekki fór mikið fyrir tölfræði varðandi bílinn en þegar hefur kvisast út að arftakinn, kominn á götuna að líkindum árið 2017, muni heita Bugatti Chiron og verða með sömu W-16 vélinni og Veyron, og einnig fjórhjóladrifinn eins og forverinn. En hestaflafjöldinn fer úr „aðeins“ 1.000 og upp í 1.500. 2017 verður eitthvað.

Rafmagnað útspil frá Benz

Eins og venjulega var Mercedes-Benz með talsvert fyrirferðarmikla nærveru á sýningunni og lagði að vanda undir sig Festhalle-bygginguna, nánast eins og hún lagði sig. Þar gat að líta, á þremur hæðum, heilan helling af draumabílum af ýmsum gerðum og rak hver girndargripurinn annan. Hvort sem það er G-lander jeppinn, S-Class Coupé eða hinn tæplega 6 metra langi S 600 Maybach Pullmann sem fær fólk til að kikna, þá sáu kynningarstjórar Daimler A.G. til þess að eitthvað var á pöllunum fyrir alla. Það var þó hugmyndabíllinn Mercedes-Benz Concept IAA sem vakti hvað mesta athygli enda afar framúrstefnulegur bíll að sjá en með merkilega „raunverulega innréttingu“ sem fær mann til að hugsa um hversu langt inn í framtíðina Benz-menn eru að plana með útspilinu? Bíllinn er öflugur plug-in hybrid með 279 hestafla vél sem skilar honum 65 kílómetra á rafmagninu einu saman. Stóra fréttin er í loftmótstöðunni en Benz hefur tekist að ná vindstuðlinum í 0.19 sem er að sönnu ótrúlegt. Því nær bíllinn með því að breyta um lögun; það er að segja, með því að styðja á hnapp fer bíllinn í „Aerodynamic Mode“ og þá skjótast út plötur sem lengja afturendann á bílnum og „flapsar“ teygjast út úr framstuðaranum, allt í nafni minni loftmótstöðu. Bíllinn er í grunninn fernra dyra coupé, hliðarsvipurinn ekki ósvipaður Audi A7 og þetta verður hið forvitnilegasta verkefni að skoða í framtíðinni.

Tiguan mætir tvíefldur til leiks

Það hefur fátt komið skemmtilegra frétta undanfarið frá Volkswagen eftir að stóra útblásturshneykslið skók bílheiminn og hrakti Martin Winterkorn úr starfi. Ekki sér fyrir endann á þeim skandal en þó verður að hrósa VW fyrir hörkuflottan Tiguan sem kynntur var í Frankfurt. Þessi jepplingur sem venjulega hefur virkað sem feimni litli bróðir Touareg er skyndilega allur að koma til og hefur fullorðnast heil ósköp á milli kynslóða. Þó að tekist hafi að létta bílinn um 55 kíló þá er hann bæði lengri og breiðari en núverandi módel, búinn rösklega 12 tommu snertiskjá í mælaborði og verður fáanlegur með 8 mismunandi vélum – hægt verður að velja úr fjórum bensínvélum, allt að 217 hestafla, og fjórum díselvélum þar sem sú öflugasta verður búin tvöfaldri túrbínu sem skilar 240 hestum til hjólanna. Mest er þó um vert að í útliti er hann hreint frábærlega vel heppnaður, auðþekkjanlega Volkswagen en engu að síður framúrskarandi upplyfting frá síðustu týpu. Við hlökkum til að fá þennan til landsins.

Ný dögun hjá Rolls-Royce

Á básnum hjá Rolls-Royce var ekki boðið upp á gos eða bjór heldur mátulega kælt Veuve Cliquot Ponsardin. Engar snittur eða snakk heldur nýbakaðar makkarónukökur í öllum regnbogans litum. Engar pappírsþurrkur heldur tauservíettur í sama skerandi appelsínugula litnum og leðurinnréttingin í Dawn, nýjasta útspili enska lúxusbílaframleiðandans sem á að höfða sterklega til hinna mjög svo sterkefnuðu. Bíllinn er engan veginn hugsaður fyrir þá sem vilja sigla undir radarnum með ríkidæmi sitt heldur gera frammámenn Rolls-Royce ráð fyrir að nú sé aftur í lagi að vera auðugur á útopnu. Dawn tilkynnir líka hverjum sem á vegi hans verður að hann kosti skildinginn. Leðrið er í mergjaðri litasamsetningu – „Mandarin“-appelsínugulur og biksvartur, á móti æðaberum Canadel-viði sem lagður er í síldarbeinsmynstur á heljarstóra fleti. Of langt mál er að telja hér upp allan aukabúnaðinn en það sem skiptir máli er að vélin er 6,6 lítra V12 með tvöfaldri túrbínu sem býr til afl upp á 563 hestöfl og skilar togi sem nemur 780 nm togi. Dawn urrar upp í hundraðið á 4,9 sekúndum og mun koma rækilega við budduna hjá þeim sem vilja kaupa eintak en verðið erlendis mun í nágrenni við 50 milljónir íslenskra króna, án tolla og aðflutningsgjalda sem á hann munu leggjast hingað til lands kominn.

Betri tíð með blóm í haga

Það blasir við, að Frankfurtarsýningunni lokinni, að helstu framleiðendur heims eru býsna borubrattir fyrir komandi mánuði, misseri og ár. Það einfaldlega skín í gegnum úrvalið sem á sýningunni var. Bílamarkaðurinn ætti því að vera með líflegasta móti í náinni framtíð og veitir ekki af eftir heldur harða tíð í kjölfar bankakreppunnar víða um heim. Það er alltént margt áhugaverðra módela á leiðinni og því ber að fagna.

jonagnar@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: