Hrikaleg hópklessa

Frá upphafi kappakstursins og hópáreksturinn er í uppsiglingu.
Frá upphafi kappakstursins og hópáreksturinn er í uppsiglingu.

Hópárekstur í kappakstri getur verið hrollvekjandi á að horfa en sem betur fer verða sjaldnast meiðsl á mönnum.

Í upphafi keppni í götubílaflokki í portúgalska sjálfstjórnarhéraðinu í Macau í Kína tefldu tveir ökumenn of djarft með þeim afleiðingum að þeir sem á eftir komu áttu margir hverjir enga undankomuleið.

Að minnsta kosti tugur bíla hentist til og frá og hver utan í annan. Sumir sluppu lítt eða ekkert skemmdir frá hildarleik þessum en gera varð hlé á keppninni með brak og bílar var hreinsað úr brautinni.

Sjón er annars sögu ríkari:

mbl.is