Kia horfir til framtíðar

Drive Wise á að uppræta eins og kostur er hugsanlegar …
Drive Wise á að uppræta eins og kostur er hugsanlegar hættur í umferðinni og bæta öryggi ökumanna og farþega.

Kia Motors kynnti nýjustu tækninýjungar sínar undir heitinu Drive Wise á CES tæknisýningunni í Las Vegas á dögunum.

Drive Wise tæknin snýst um byltingarkennd aðstoðarökukerfi fyrir Kia bíla framtíðarinnar. Kia hefur lýst yfir þeim markmiðum sínum að koma fram með bíla, sem verða að miklu leyti sjálfvirkir, á markað árið 2020. Í framhaldi af því stefnir Kia á að koma með fyrsta sjálfakandi bíl fyrirtækisins á markað árið 2030.

Hin nýja Drive Wise tækni Kia er nú þegar í þróun og vinnslu. Drive Wise á að koma fram með snjallar öryggislausnir fyrir næstu kynslóðir Kia bíla, uppræta eins og kostur er hugsanlegar hættur í umferðinni og bæta öryggi ökumanna, farþega og annarra í umferðinni. Stefnt er að því að Drive Wise tæknin muni gera Kia bíla sjálfvirkari í auknum mæli. Sjálfvirki búnaðurinn sem er í þróun á að sýna betra viðbragð og eftirtekt í akstri en venjulegur ökumaður myndi gera.

Kia mun sýna enn betur fram á þróun hinnar nýju Drive Wise tækni á bílasýningunni í Genf í mars nk. en þar munu gestir sýningarinnar fá að sjá inn í framtíðina hjá Kia varðandi sjálfvirkan akstur og ýmsar fleiri tækninýjungar sem snúa að aðstoðar- og öryggiskerfum bíla.

mbl.is