Audi kynnir fjölbreyttar nýjungar

Þýski bílsmiðurinn Audi kynnti spennandi nýjungar á nýafstöðnu alþjóðlegu bílasýningunni í Detroit. Þar má fyrstan nefna nýjan Audi A4 allroad quattro.

Hann áfram með quattro fjórhjóladrifi en auk þess að vera léttari og með aukna veghæð er hann nú í fyrsta skipti með nýrri offroad akstursstillingu. Nýr A4 er væntanlegur í Audi salinn hjá Heklu á næstu vikum og allroad útgáfan kemur til landins á vormánuðum.

Audi hefur það að markmiði að auka úrvalið af fjölbreyttum aflgjöfum og býður upp á sérhannaðar lausnir fyrir viðskiptavini. Ein aðalstjarnan í framtíðaráformum Audi er vetnisbíll sem gengur undir vinnuheitinu Audi h-tron quattro concept og var frumsýndur á sýningunni.

„Með vetnisbílnum er mikilvægum áfanga náð á leiðinni til breyttrar og vistvænni framtíðar. Hann státar af fimmtu kynslóð efnarafgjafatækni frá Audi og Volkswagen og dregur allt að 600 kílómetra. Með Audi h-tron er sýnt fram á hversu gríðarleg tækifæri felast í tækninýjungum í efnarafgjöfum,“ segir í tilkynningu frá Heklu.

Tengiltvinnbíllinn A3 e-tron frá Audi hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að hann kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2104 og í mars mætir Audi Q7 e-tron tengiltvinnbíllinn til leiks.

Árið 2018 verður svo hafist handa við framleiðslu á rafmagnsjepplingum í verksmiðju Audi í Brussel. Forsmekkurinn af slíkum hreinum rafmagnsbílum var sýndur fyrst á bílasýningunni í Frankfurt í fyrra í formi Audi e-tron quattro concept. Hvað stærð varðar verða rafmagnsjepplingarnir staðstettir á milli Q5 og Q7 í bílalínu Audi. Þeir verða búnir þremur rafmótorum og afkastamiklum rafgeymi. Útlitið verður sportlegt og þeir munu bjóða upp á hámarks aksturseiginleika, um 500 kílómetra drægi og hraðhleðslu. Í verksmiðjunni í Brussel hyggst Audi einnig hefja framleiðsla á rafgeymum og mun hún því gegna lykilhlutverki í rafvæðingu hjá fyrirtækinu.

mbl.is