Jeep heillar Indverja

Þessa dagana stendur yfir stór bílasýning í útjaðri Nýju Delhí á Indlandi; sú stærsta sem þar er haldin ár hvert.

Bílsmiðir hafa horft hýru auga til Indlands vegna hraðst hagvaxtar. Nam vöxturinn 7,3% á þriðja fjórðungi fjárlagaársins, sem lýkur í apríl. Var þar um lítilsháttar samdrátt að ræða frá næsta fjórðungi á undan, en vöxturinn var þó umfram spár sérfræðinga.

Svo sem sjá má á meðfylgjandi myndasyrpu er áhugi á sýningunni mikill og mannmergð á bás Jeep.

mbl.is