BL innkallar Subaru-bifreiðar

Merki Subaru
Merki Subaru

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá BL ehf. um innköllun á 12 Subaru-bifreiðum af tegundinni Impreza/XV árgerð 2015.

Ástæða innköllunarinnar er möguleg bilun í startara sem getur komið í veg fyrir að bíll starti  eða hljóð byrjar að heyrast í startara. Endurforrita þarf vélartölvuna.

Nánari upplýsingar um innköllunina er hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúum í þjónustuveri BL ehf. Neytendastofu.

mbl.is