Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Toyota á Íslandi að innkalla þurfi 1.575 RAV4-bifreiðar af árgerðum frá 2006-2012.
Ástæða innköllunarinnar er að öryggisbeltin geta skorist á grind í setu í aftursætinu. Setja þarf plasthlíf á grindina í sætinu til að koma í veg fyrir að beltið snerti grindina sjálfa, að því er segir á vef Neytendastofu.
Toyota mun hafa samband við bifreiðareigendur vegna þessarar innköllunar.