Innkallar 28 VW Passat

AFP

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Heklu þar sem kemur fram að þeir hafi fengið tilkynningu frá Volkswagen AG um innköllun á Passat árgerð 2015 og 2016, sem framleiddir voru á afmörkuðu tímabili. Alls 28 bifreiðar.

Ástæða innköllunar er að möguleiki er á að tengi fyrir leiðslur í rafmagnsstjórnboxi sé ekki tryggilega fest. Ef los verður á tenginu getur bíllinn drepið á sér og truflanir orðið á öðrum rafbúnaði eins og mælaborði, aflstýri og hjálparátaki fyrir bremsur. Við þær aðstæður getur skapast slysahætta, að því er segir í tilkynningu á vef Neytendastofu

Þá kemur fram, að bifreiðareigendurnir muni fá sent bréf frá Heklu vegna þessarar innköllunar.

Eigendum Passat bíla árgerð 2015 og 2016 sem fluttir hafa verið inn af öðrum en Heklu hf. er bent á að hafa samband við Heklu hf. til að kanna hvort þeirra bíll falli undir þessa innköllun.

mbl.is