Bílabúð Benna í Eyjum um helgina

Eyjamenn fá meðal annars að sjá Bíl ársins, Opel Astra, …
Eyjamenn fá meðal annars að sjá Bíl ársins, Opel Astra, um helgina.

Bílabúð Benna heimsækir Vestmannaeyjar um helgina með bílaflota og slær upp sýningu við Nethamra.

Til sýnis verða Opel, Chevrolet og SsangYong bílar. Frá Opel ber hæst frumsýning í Eyjum á nýkjörnum Bíl ársins, Opel Astra. Aðrar gerðir frá Opel eru flaggskipið Insignia, sportjeppinn Mokka og Corsa.

Frá Chevrolet verður flaggað Cruze og metsölubílnum Spark. Þá verða líka með í ferð jepparnir Korando og Rexton frá SsangYong.

Bílasýningin verður haldin við bíla- og vélaverkstæðið Nethamar, laugardaginn 30. apríl, frá klukkan 11 til 16 og sunnudaginn 1. maí, frá 11 til 14.  Heitt verður á könnunni og bakkelsi á borðum.

mbl.is