Volkswagendagurinn haldinn með pompi og prakt

Tvinnbíllinn Passat GTE verður frumsýndur hjá Heklu laugardaginn 7. maí.
Tvinnbíllinn Passat GTE verður frumsýndur hjá Heklu laugardaginn 7. maí.

Næstkomandi laugardag, 7. maí efnir Hekla til árlegs Volkswagendags og stendur hátíðin yfir frá klukkan 12 til 16. 

„Nýr og glæsilegur Volkswagen Passat GTE verður frumsýndur við þetta tilefni en þessi vistvæni tengiltvinnbíll er nýjasta viðbótin í Volkswagen fjölskyldunni,“ segir í tilkynningu vegna sýningarinnar.

Passat GTE gengur fyrir bæði rafmagni og bensíni og honum má leggja frítt í stæði. Hann nær allt að 50 kílómetra vegalengd á rafmagninu einu saman og án nokkurs útblásturs. Passat GTE kemur með 1,4 lítra TSI vél með innbyggðum rafmótor sem samanlagt skilar 218 hestöflum. Meðaleyðsla er 1,6 lítrar á hverja 100 kílómetra og hann er 7,4 sekúndur í hundraðið.

Meðal staðalbúnaðar í Passat GTE er Alcantara sæti með stillanlegum bakstuðningi, lyklalaus ræsing, margmiðlunartæki með 6,5 tommu litaskjá, 7 loftpúðar, nálgunarvarar að aftan og framan, bakkmyndavél, litað gler í afturrúðum, rafmagnsopnun á afturhlera og 17 tommu Montpellier álfelgur. Volkswagen Passat GTE kostar frá krónum 4.990.000.

„Volkswagen dagurinn er orðinn að árlegum viðburði hjá okkur og það skapast alltaf mikil stemning fyrir honum. Á laugardaginn ætlum við að kynna nýjan Volkswagen Passat GTE sem við höfum beðið spennt eftir en hann er annar tengiltvinnbíllinn frá Volkswagen og gengur bæði fyrir bensíni og rafmagni. Hann er frábær viðbót við vöruúrvalið okkar og við mælum með því að fólk prófi,“ segir Árni Þorsteinsson sölustjóri Volkswagen.

Auk Passat GTE verður til sýnis úrval Volkswagenbíla, allt frá borgarbílnum up! til Touareg. Sértilboð verður á sýningarbílum á staðnum. Veltibíllinn lætur sig ekki vanta en hann hefur farið með Íslendinga hring eftir hring síðan árið 1995 og tekur snúning með gestum. Að auki verður boðið upp á reynsluakstur, svellkaldan ís frá Valdís og blöðrudýr fyrir börnin.

Tvinnbíllinn Passat GTE verður frumsýndur hjá Heklu laugardaginn 7. maí.
Tvinnbíllinn Passat GTE verður frumsýndur hjá Heklu laugardaginn 7. maí.
mbl.is