Árlegur þjónustudagur hjá viðurkenndum sölu- og þjónustuaðilum Toyota víða um land verður haldinn á morgun, laugardaginn 7. maí.
Þetta er 12. árið í röð sem Toyotaeigendur geta komið til sölu- eða þjónustuaðila og fengið vorhreingerningu á bílnum.
„Allir Toyotaeigendur eru velkomnir milli kl. 11 og 15 á laugardag og verður vel tekið á mótið þeim af starfsmönnum Toyota og hjálparkokkum sem sápuþvo bílana og þurrka. Þegar bíllinn hefur fengið sitt bíður grill, gos og gaman fyrir börn og fullorðna,“ segir í tilkynningu frá Toyota.
Sýningarsalir verða opnir hjá söluaðilum þar sem skoða má það nýjasta frá Toyota.
Toyotaeigendur geta rennt við á þjónustudeginum hjá Toyota á Akureyri, Selfossi, í Reykjanesbæ og Kauptúni, hjá Bifreiðaverkstæði KS á Sauðárkróki, Bílageiranum í Reykjanesbæ, Bifreiðaverkstæði Reykjavíkur á Bæjarflöt, Nethamri í Vestmannaeyjum og hjá Arctic Trucks á Kletthálsi.