Fjórir tengiltvinnbílar frá Mercedes

Mercedes-Benz GLE tengiltvinnbíllinn er kominn til Öskju.
Mercedes-Benz GLE tengiltvinnbíllinn er kominn til Öskju.

Bílaumboðið Askja býður til Mercedes-Benz Plug-in Hybrid sýningar nk. laugardag klukkan  12-16. Askja býður nú þegar til afhendingar fjórar tegundir af Mercedes-Benz tengiltvinnbílum.

Um er að ræða sportjeppanna GLE og GLC auk C-Class og S-Class. Mercedes-Benz áætlar að fyrir lok árs 2017 verði 10 mismunandi gerðir Plug-in Hybrid bíla komnir á markað.

Tengiltvinnbílar hafa brunavél og rafmótor og bjóða því upp á mikið afl en einnig mjög litla eldsneytiseyðslu. Þessi gerð bíla er því talin umhverfismild. Drægnin á rafgeyminum einum saman er 20-40 km. eftir gerðum og er þá miðað við bestu aðstæður. Tengiltvinnbíll getur þannig ekið á rafmagninu en síðan tekur brunavélin við þegar rafgeymirinn tæmist. Hægt er að setja bílinn í samband við rafmagn og þannig er hann hlaðinn í venjulegri heimilisinnstungu sem er 230V/16A.

„Þrátt fyrir mikinn kraft, þar sem til dæmis GLE jeppinn skilar 333 hestöflum í bensínvél og 116 hestöflum með rafmótor þá er þessi 449 hestafla tengiltvinnbíll frá Mercedes-Benz að ná framúrskarandi árangri í eyðslutölum, eða allt frá 3,3 lítrum á hundraðið í blönduðum akstri. Þá er koltvísýringslosunin mjög lág. Hröðun GLE Plug in Hybrid er einnig mjög mikil og tekur aðeins 5,3 sekúndur að ná 100 km. hraða,“ segir í tilkynningu um sýninguna hjá Öskju.

Askja sýnir Mercedes-Benz GLE tengiltvinnbíllinn á laugardaginn kemur.
Askja sýnir Mercedes-Benz GLE tengiltvinnbíllinn á laugardaginn kemur.
mbl.is