Verðlaun í boði fyrir reynsluakstur

Þeir sem spreyta sig við reynsluakstur á Opel Astra,  bíl ársins í Evrópu, hjá Bílabúð Benna fram til mánaðarmóta, eiga möguleika á veglegum verðlaunum.

Til þess að komast í pottinn má reyndar aka hvaða öðrum bíl úr Opel-fjölskyldunni sem viðkomandi kynni að hafa áhuga á.  

Leiknum lýkur 30. maí og verður þá dregið út hverji hljóta vinningana. Sem eru miði á stórtónleika Simply Red í Laugardalshöll 31. maí og málsverður fyrir tvo á Kol Restaurant.

„Þeir sem vilja kynnast gæðabílum og freista gæfunnar í leiðinni eru hvattir til að koma í sýningarsal Opel í Tangarhöfða 8 eða Njarðarbraut 9 Reykjanesbæ og reynsluaka Opelbílum,“ segir í tilkynningu frá Bílabúð Benna.

mbl.is