Skoda-dagur hjá Heklu

Skoda Octavia G-TEC
Skoda Octavia G-TEC

Það er orðið að árlegri hefð hjá bílaumboðinu Heklu að halda Skoda daginn hátíðlegan. Næstkomandi laugardaginn,  28. maí,  verður blásið til veislu í höfuðstöðvum Skoda við Laugaveg 170 – 174.

Meðal Skodabíla sem þar verða í aðalhlutverki má nefna Octavia G-TEC sem gengur fyrir bæði metan og bensíni, borgarbíllinn Fabia og flaggskip Skoda, hinn margverðlaunaða Superb.

„Skoda býður breitt úrval af bílum og við verðum að sjálfsögðu með allt það nýjasta til sýnis á laugardaginn. Að auki verður boðið upp á reynsluakstur, gómsætar pylsur og andlitsmálningu fyrir börnin og ég á vona að þetta verði skemmtilegur dagur að vanda,“ segir Gestur Benediktsson, sölustjóri Skoda.

Flaggskipið Skoda Superb
Flaggskipið Skoda Superb
mbl.is