Porsche fagnar sumri

Táknmerki Porsche.
Táknmerki Porsche.

Nokkrir glænýir ofurjeppar og -sportbílar frá Porsche hafa verið fluttir til landsins og verða til sýnis á sumarsýningu Porsche hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardag.

Þessir bílar munu taka sér stöðu með hinum gripunum í sterkri vörulínunni í Porsche salnum.  Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi, segir að hér séu um að ræða mjög spennandi útfærslur, m.a. glæsilega Porsche 911 S sportbíla, Cayenne S E Hybrid í sportútgáfu og Porsche Macan í nýrri mynd. 

Sumarsýning Porsche verður haldin í Porsche salnum, Vagnhöfða 23, frá klukkan 12 til 16.

mbl.is