Takast á við krefjandi æfingabraut BMW

Eyþór Örlygsson segir þjálfunina sem fæst í Hecklingen gagnast fólki …
Eyþór Örlygsson segir þjálfunina sem fæst í Hecklingen gagnast fólki á öllum tegundum mótorhjóla. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Í apríl hélt fríður hópur vélhjólafólks til bæjarins Hecklingen í Þýskalandi. Í bænum starfrækir BMW ökuskóla þar sem nemendur læra að takast á við krefjandi aðstæður á mótorhjóli.

Ferðin var á vegum Reykjavik Motor Center (www.rmc.is), þar sem Eyþór Örlygsson er framkvæmdastjóri:

„Um er að ræða tveggja daga námskeið á stóru og þungu ferðahjólunum og lærir fólk að beita þeim rétt við erfiðustu aðstæður sem hægt er að lenda í. Enduro Park-æfingasvæðið í Hecklingen býður upp á allt frá mjóum einstígum, drullu og sandpyttum yfir í blautar og stórar rætur sem þarf að komast yfir án þess að setja niður lappirnar.“

Hafa hópinn ekki of stóran

Var þetta í annað skiptið sem Reykjavik Motor Center efnir til ferðar til Hecklingen. Slógust fjórtán manns með í för í ár, voru fimmtán í fyrra, en Eyþór segir reynt að hafa hópinn ekki of stóran. Í október hefst skráning fyrir næstu ferð. „Við setjum markið við sautján manns í hverri ferð en ef fleiri skrá sig fyrir þátttöku að ári er sá möguleiki fyrir hendi að skipuleggja tvær ferðir.“

Allt talið tekur ferðalagið fjóra til fimm daga. Byrjað er í München og fer fyrsti dagurinn í að líta við á elstu krá borgarinnar, skoða BMW-safnið og heimsækja risastóran vörulager BMW, þar sem kaupa má vörur beint eða panta í gegnum Reykjavik Motor Center. Því næst liggur leiðin til Hecklingen, þar sem hópurinn gistir á notalegu hóteli og er skutlað á milli hótels og æfingasvæðisins, sem er í fallegu friðlandi. „BMW þarf að fylgja reglum þjóðgarðsins og er t.d. aðeins leyft að hafa 40 hjól á ferðinni hvern kennsludag og að hámarki fimm daga í viku, svo að náttúran fái tækifæri til að jafna sig inn á milli. Þá er kennslutímabilið bundið við apríl fram í október til að lágmarka álagið á umhverfinu.“

Góð byrjun á sumrinu

Eyþór segir apríl hafa orðið fyrir valinu hjá íslenska hópnum enda góð leið til að hefja mótorhjólasumarið. Fram undan eru ýmis mótorhjólaævintýri og langir túrar, og því upplagt að vera með þekkinguna og þjálfunina ferska áður en haldið er út á íslensku þjóðvegina.

Í Hecklingen er hópnum skipt upp eftir hæfni. BMW útvegar hjólin og þaulreyndir kennarar leiða þátttakendur í gegnum æfingarnar með tilsögn og sýnikennslu. Eyþór segir brautina krefjandi en leiðsögnina vandaða og sáralítið um að slys verði á fólki. „Það er einkum þegar líða tekur á daginn að þreytan getur orðið til þess að nemendur gera klaufamistök og missa hjólin á hliðina. Þátttakendur þurfa að vera í ágætu líkamlegu formi og með gott úthald en sjálfsagt er líka að taka pásu ef þess reynist þörf. Æfingar standa yfir frá 8.30 til 17 báða kennsludagana, tekið klukkustundarlangt hlé í hádeginu og fullt af vatnsstoppum yfir daginn.“

Það eina sem þátttakendur þurfa að taka með sér út er hlífðarfatnaður og góða skapið. Þökk sé samkomulagi milli Icelandair og Reykjavik Motor Center þarf ekki að borga yfirvigtargjald af hjálmum, brynjum og öðrum þungum motorhjólaflíkum. Eyþór segir mjög góða stemningu myndast í hópnum, glatt á hjalla og auk þess að verða hæfari mótorhjólamenn geti þátttakendur vænst þess að eignast nýja vinni.

Gagnast á öllum hjólum

Bendir Eyþór líka á að þótt notast sé við torfæruhjól á námskeiðinu gagnist þjálfunin á öllum tegundum hjóla. „Hvort sem ekið er á malarvegi eða erfiðum slóða, á torfæruhjóli eða Harley, nýtist þekking í réttri líkamsbeitingu á öllum hjólum og við allar aðstæður.“

Til viðbótar við Hecklingen-ferðirnar stendur Reykjavik Motor Center fyrir kennslu sem fram fer á Íslandi. „Við gerðum tilraun með það síðasta haust og endurtökum leikinn í ár. Flytjum við inn kennara frá Bretlandi og nýtum hjólin frá Biking Viking. Er námskeiðið þannig skipulagt að byrjað er á tveggja daga kennslu og þjálfun og síðan haldið í þriggja daga mótorhjólaferð yfir hálendið.“

ai@mbl.is

Salan ætti að glæðast þetta sumar eða næsta

Reykjavik Motor Center varð til árið 2012 með samruna Harley Davidson-umboðsins, mótorhjólaleigunnar Biking Viking og vespuleigunnar Lundavespna.

Í dag eru mótorhjólin frá BMW í fyrirrúmi en hjá fyrirtækinu er einnig hægt að finna hjól frá Piaggio, Vespa, Aprilia, og Moto Guzzi.

Að sögn Eyþórs hefur salan á mótorhjólum ekki enn náð sér almennilega á strik eftir hrunið margumtalaða og er það einkum mótorhjólaleigan sem ber reksturinn uppi. Ferðamönnum fjölgar ár frá ári og margir vilja skoða landið á vélhjóli sem kemst hvert á land sem er.

Má þó reikna með að salan taki að glæðast innan skamms. Eyþór þekkir mótorhjólamarkaðinn vel en hann var á sínum tíma innkaupastjóri hjá mótorhjólaversluninni Nitró. „Eftir niðursveiflu má fyrst reikna með að salan á bílum taki við sér. Síðan koma ferðavagnarnir og ódýrari „leikföng“ og loks mótorhjólin. Miðað við þessa þumalputtareglu má vænta þess að þetta sumar og næsta fari salan mótorhjólum að komast á eðlilegt ról.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: