Opel Astra, Bíll ársins í Evrópu 2016, gerir sig gildandi á sífellt fleiri sviðum. Nýlega kynnti bílasmiðurinn til sögunnar sérstaka útfærslu af Sports Tourer-langbaksútgáfunni.
Þessi bíll þykir sniðinn fyrir fyrirtæki í neyðarþjónustu; slökkvilið og sjúkrastofnanir, að því er fram kemur í tilkynningu frá umboðinu, Bílabúð Benna.
„Í grunninn kemur bíllinn afar vel búinn, nýjum og framúrskarandi tæknilausnum hvað varðar allan samskipta- og öryggisbúnað. Þegar við bætast svo 190 kg léttari hönnun miðað við forverann og öflug og spræk 136 hestafla díselvél með sex þrepa sjálfskiptinu, þá er kominn bíll sem eru allir vegir færir,“ segir í tilkynningunni.
Fyrirtæki og stofnanir sem sinna neyðarþjónustu voru höfð með í ráðum við mótun á bílnum. Fyrstu eintök hans koma á götur Evrópu í haust.