Tivoli selst umfram áætlanir

Tivolijeppinn frá SsangYong.
Tivolijeppinn frá SsangYong.

SsangYong verksmiðjurnar í Suður-Kóreu slógu upp stórfagnaði á dögunum. Tilefnið var að Tivoli, nýjasta afurð bílsmiðjunnar, hafði rofið 100 þúsund bílasölumúrinn níu mánuðum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Talsmaður SsangYong segir að með tilkomu Tivoli, í janúar á síðasta ári, hafi salan hjá fyrirtækinu á heimsvísu vaxið um heil 55,9%.

Bílabúð Benna, umboðsaðili SsangYong á Íslandi, frumsýndi Tivoli hérlendis í maí. Að sögn Björns Ragnarssonar framkvæmdastjóra bílasviðs, hefur Tivoli líka fallið í góðan jarðveg hjá Íslendingum.

„Við erum auk þess að sjá góða söluaukningu í allri jeppalínunni frá SsangYong, Rexton, Korando og Tivoli. Tivoli sportjeppinn er frábær valkostur í fjórhjóladrifsbílum og hann er líka fáanlegur sjálfskiptur. Nýstárlegt útlit Tivoli hefur hrifið fólk, ásamt þægilegu aðgengi, tæknibúnaði og sparlegum eldsneytistölum og svo sakar ekki að  við erum að bjóða hann á afar samkeppnishæfu verði.“ segir Björn.

mbl.is