Hjólhýsi sem hlær að erfiðum vegum

Stór dekk og úthugsuð fjöðrun þýðir að hjólhýsið frá Bruder …
Stór dekk og úthugsuð fjöðrun þýðir að hjólhýsið frá Bruder er því sem næst óstöðvandi.

Þeim sem finnst gaman að skoða landið með hjólhýsi í eftirdragi geta stundum rekið sig á að hjólhýsið kemst ekki endilega yfir vegi og slóða sem bíllinn ræður við.

Kröftugur og hækkaður jeppi getur komist hvert á land sem er en öxullinn og dekkin á dæmigerðu hjólhýsi henta ekki alltaf til notkunar annars staðar en á rennisléttu malbiki.

Þeir sem láta ekkert stoppa sig í ævintýrunum hafa örugglega gaman af vagninum hér til hliðar, frá ástralska framleiðandanum Bruder.

EXP-6 Off Road Trailer heitir þetta hjólhýsi og hefur verið hannað og smíðað gagngert til notkunar utan vega. Fjöðrunin er úthugsuð og á að ráða vel við urð og grjót og ytra byrðið er allt sterkbyggt og kraftalegt að sjá.

Að innan tekur síðan við lúxus í hólf og gólf. Þar er meðal annars sjónvarpsskjár sem getur vísað bæði inn og út, ef fólk vill horfa á imbann og njóta góða veðursins um leið. Þá er kælir og vínrekki í hjólhýsinu og örlítið baðherbergi með sturtu.

Eldhúsið opnast utan frá og hefur kokkurinn góða aðstöðu undir skyggni til að galdra fram kræsingar.

Nánari upplýsingar má finna á Bruderx.com ai@mbl.is

Að innan er meiri lúxus en á mörgum heimilum, og …
Að innan er meiri lúxus en á mörgum heimilum, og rekki fyrir vínið.
Eldhúsið er utan á vagninum svo að ekki skortir kokkinn …
Eldhúsið er utan á vagninum svo að ekki skortir kokkinn plássið.
Hjólhýsi ráða ekki öll við að komast hvert á land …
Hjólhýsi ráða ekki öll við að komast hvert á land sem er.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina