Kia setur sölumet í Evrópu

Kia Sportage hefur selst vel í Evrópu á árinu.
Kia Sportage hefur selst vel í Evrópu á árinu.

Kia seldi alls um 230 þúsund bíla í Evrópu á fyrstu sex mánuðum ársins og hefur suður-kóreski bílaframleiðandinn aldrei selt jafnmarga bíla í álfunni á sex mánaða tímabili.

Salan hjá Kia í Evrópu í ár hækkar um 14,4% miðað við sama tímabil í fyrra. Er hlutdeild Kia í Evrópumarkaðinum þar með komin í 2,8%, sem er það hæsta sem fyrirtækið hefur náð í álfunni. Þar munar mest um góða sölu á hinum nýja Kia Sportage sportjeppa sem kom á markað í ársbyrjun.

„Kia heldur áfram auknum vexti og árangri í Evrópu og ljóst að evrópskir kaupendur horfa í auknum mæli á Kia bíla sem vel hannaða gæðabíla. Kia er á góðri leið með að slá ársmet í sölu í Evrópu í áttunda skipti í röð ef svo heldur sem horfir,“ segir Michael Cole, einn af framkvæmdastjórum Kia Motors Europe.

Sala Kia heldur einnig áfram að aukast á Íslandi, samkvælmt upplýsingum frá bílaumboðinu Öskju, sem fer með umboð fyrir Kia. Fyrstu sex mánuði ársins seldust 1.008 Kia bílar en það er í fyrsta skipti sem salan fer yfir þúsund bíla hér á landi á þessu tímabili. Markaðshlutdeild Kia á Íslandi er 8,5% miðað á fyrri hluta ársins og söluaukningin um 20% miðað við sama tímabil í fyrra.

mbl.is