Alveg nýr C3 í vændum

Hinn nýi Citroen C3 breytist bæði innan dyra sem utan …
Hinn nýi Citroen C3 breytist bæði innan dyra sem utan og verður fullur af tækninýjungum.

Franski bílsmiðurinn Citroen kemur með nýtt og gjörbreytt eintak af smábílnum C3 á næsta ári. Hefur hann birt ljósmynd af frumgerð nýrrar kynslóðar bílsins.

Útlit bílsins tekur áberandi breytingum, ekki síst vegna stuðpúða á hliðunum; hugmynd sem áður hefur sést á bílnum Citroen Cactus.  Þá hefur hönnun framendans tekið breytingum.

Þótt nýi bíllinn sé smíðaður upp af sama undirvagni og forverinn þá er hann ögn lengri, lægri og aðeins breiðari. Einnig er öxulhafið lengra.

Þá fylgir fregnum frá PSA Group, móðurfélagi Citroen og Peugeot, að miklar nýjungar í innviðum bílsins muni sjá dagsins ljós. Tekur til að mynda mælaborðið stakkaskiptum og ný sæti verða í hinum nýja Citroen C3.

Þá er boðað nýtt upplýsinga- og samskiptakerfi, ConnectedCAM Citroen, sem meðal annars býður upp á að háskerpumyndavél sendi myndir og myndskeið úr ferðalagi beint til vina og vandamanna.
 
C3 hefur verið vinsælasti bíll Citroen í seinni tíð. Frá því hann kom fyrst á markað árið 2002 hafa selst 3,6 milljónir eintaka af þessum bíl.

mbl.is