4MATIC jeppasýning hjá Öskju

Mercedes GLC.
Mercedes GLC.

Bílaumboðið Askja býður til glæsilegrar 4MATIC jeppasýningar á laugardag kl. 12-16. Þar verður sýnd öll nýja jeppalína þýska lúxusbílaframleiðandans. Um er að ræða lúxussportjeppanna GLA, GLC, GLS, GLE og GLE Coupé auk G-jeppans.

GLC og GLE verða m.a. sýndir í Plug-In Hybrid útfærslum en tengiltvinntæknin nýtur sífellt meiri vinsælda. Allir bílarnir eru með 4MATIC fjórhjóladrifinu frá Mercedes-Benz.

Þá verður einnig úrval af fjórhjóladrifnum atvinnubílum frá Mercedes-Benz til sýnis í Öskju á laugardag og má þar nefna V-Class, Vito og Sprinter bíla í ýmsum útfærslum.

Í tilkynningu frá Öskju segir, að 4MATIC sé eitt fullkomnasta aldrifskerfi sem völ er á og er nú í boði í öllum gerðum sjálfskiptra bíla frá Mercedes-Benz. 4MATIC kerfið deili vélarafli og snúningsvægi til allra fjögurra hjóla bílsins eftir þörfum hverju sinni - jafnt þegar ekið er á bundnu slitlagi sem í torfærum.

Boðið verður upp á ýmis tilboð í tilefni sýningarinn. 20% afsláttur verður veittur af Mercedes-Benz aukahlutum og 25% afsláttur af rúðuþurrkum, frí ásetning og áfylling á rúðuvökva.

mbl.is