Loksins myndir af innanrými C-HR

Toyota C-HR ar fyrst kynntur fyrir almenningi sem hugmyndabíll á …
Toyota C-HR ar fyrst kynntur fyrir almenningi sem hugmyndabíll á alþjóðlegu bílasýningunni í París árið 2014, og sló þegar í stað í gegn. Tveimur árum síðar er hann kominn í framleiðslu og eftirvæntingin er mikil.

Síðan fyrstu myndir tóku að kvisast út af nýjum millistærðarbíl Toyota, sem kallast C-HR, hefur töluverð eftirvænting ríkt eftir frekari upplýsingum.

Bíllinn, sem var fyrst frumsýndur sem hugmyndabíll í París árið 2014, er eiginlega í nýjum stærðarflokki, einhvers staðar á bilinu milli jeppa og fólksbíls og nafnið vísar til þess að þessi bræðingur rær á ný mið. Stafirnir í nafninu eru nefnilega stytting fyrir fullt nafn, sem er Coupé-High Rider.

Kunnuglegur bíll og framandi að sjá í senn

Þegar C-HR er skoðaður sést glögglega skyldleiki við nýjustu kynslóð flestra fólksbíla frá Toyota, alltént hvað framendann varðar. Yfirbyggingin er aftur á móti gerólík flestu sem áður hefur sést, hvort heldur er frá Toyota eða öðrum framleiðendum. Það segir sína sögu að framleiðandinn staðsetur bílinn á milli Toyota Auris TS og RAV4. Með þessu er stefnt að því ökumaður fái háa akstursstöðu án þess að aka stórum jeppa, um leið og bíllinn er lipur í akstri innan borgarmarkanna.

Helstu mál bílsins eru þau að hann er 4.360 mm á lengd, 1.795 mm á breidd og 1.555 mm á hæðina. Hjólhafið er 2.640 mm.

Forsala bílsins hefst víða í Evrópu strax í september og afhendingar fyrstu bíla verður rétt fyrir áramót.

C-HR verður svo frumsýndur með viðeigandi pomp og prakt á alþjóðlegu bílasýningunni í París í byrjun október næstkomandi, tveimur árum eftir frumsýningu bílsins á sama stað, eins og framar greindi.

jonagnar@mbl.is

Mikil spenna hefur ríkt eftir því að fá að skyggnast …
Mikil spenna hefur ríkt eftir því að fá að skyggnast inn fyrir dyr í hinum nýja C-HR. Bílinn má svo skoða í krók og kring í París í október.
Línurnar í innréttingu og mælaborði endurspegla sterka drætti yfirbyggingarinnar. Hönnunin …
Línurnar í innréttingu og mælaborði endurspegla sterka drætti yfirbyggingarinnar. Hönnunin þykir framúrstefnuleg en útkoman er flott.
Toyota C-HR.
Toyota C-HR.
Innanrýmið og aðstaða ökumanns er sportleg að sjá og í …
Innanrýmið og aðstaða ökumanns er sportleg að sjá og í takt við yfirbragð C-HR í heildina.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: