Innkalla 176 Volvo-bifreiðar

mbl.is/Eggert

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Brimborg varðandi innköllun á 176 Volvo bifreiðum af gerðinni XC90, en framleiðsluár þeirra er 2016 og 2017.

Ástæða innköllunarinnar er sú að hugsanlegur samsetningargalli á affalsröri fyrir AC-kerfi getur leitt til leka inn í bíl. Ef það lekur inn í bíl er hætta á rafmagnsbilunum, að því er segir í tilkynningu á vef Neytendastofu.

Viðkomandi bifreiðareigendur munu fá sent bréf frá Brimborg vegna þessarar innköllunar.

mbl.is