Ný Corolla frumsýnd

Hálfrar aldar aldursmunur og ólíkar Corollur. Fulltrúar fyrstu (t.v.) og …
Hálfrar aldar aldursmunur og ólíkar Corollur. Fulltrúar fyrstu (t.v.) og elleftur (t.h.) kynslóðar Toyota Corolla.

Laugardaginn kemur, 1. október, verður ný Corolla frumsýnd hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi.

Sýningin stendur frá kl. 12 – 16 og er hluti af 50 ára afmælishátíð þessa mest selda bíls í heimi.

Fjöldi nýjunga er í þessari 11. kynslóð af Corollu sem er fyrir löngu orðin heimilisvinur á Íslandi eins og annars staðar enda hefur Corolla selst í  44 milljón eintökum í 150 löndum frá því hún var fyrst kynnt á miðjum bítlatímanum, 1966.

Á meðfylgjandi mynd má glöggt sjá hvernig Corollan hefur breyst á hálfri öld.  

mbl.is