Renault kynnti nýjungar í París

Carlos Ghones og Laurens Van de Acker, yfirhönnuður Renault við …
Carlos Ghones og Laurens Van de Acker, yfirhönnuður Renault við nýjan hugmyndabíl á bílasýningunni í París í morgun, sportrafbílinn Renault Trezor.

Bílasýningin alþjóðlega og stóra Í París opnaði dyr sínar fyrir blaðamönnum í morgun og njóta þeir réttanna fyrstu tvo dagana, en á laugardag opnar hún síðan fyrir almenning.

Eins og nærri má geta láta franskir bílaframleiðendur mikið að sér kveða á sýningunni á heimavelli, en hún er sú stærsta sem fram fer í heiminum í ár.

Þannig kynnti Renault nokkra nýja bíla sem væntanlegir eru á markað í byrjun nýárs. Meðal gripa á bás Renault var einnig að finna óvenjulega hugmynd að nýjum sportrafbíl sem gengur undir heitinu Renault Trezor.

Sömuleiðis var kynnt ný útgáfa af rafbílnum Renault Zoe sem kominn er með 40 kw rafhlöðu sem fleytir honum 400 km á hleðslu. Þessi bíll verður kynntur hjá BL í mars næstkomandi.

Hinn nýja Renault Megane Sport Tourer var líka að finna á bás Renault en hann verður kynntur í nóvember hjá BL.

Sjö sæta Renault Grand Scenic verður einnig kynntur í nóvember hjá BL. Loks trónir nýr  Koleos á bás Renaulten hann er náfrændi Nissan X-Trail, verður kynntur hjá BL næsta vor, í maí 2017.

Bjarni Þórarinn Sigurðsson, vörumerkjastjóri Renault hjá BL, við nýja útgáfu …
Bjarni Þórarinn Sigurðsson, vörumerkjastjóri Renault hjá BL, við nýja útgáfu rafbílsins Zoe í París í morgun.
Renault Zoe kominn með 40 kw rafhlöðu sem fleytir honum …
Renault Zoe kominn með 40 kw rafhlöðu sem fleytir honum 400 km á hleðslunni. Þessi bíll verður kynntur hjá BL í mars næstkomandi.
Renault Megane Sport Tourer verður kynntur í nóvember hjá BL.
Renault Megane Sport Tourer verður kynntur í nóvember hjá BL.
Bjarni Þórarinn Sigurðsson, vörumerkjastjóri Renault hjá BL, við hinn nýja …
Bjarni Þórarinn Sigurðsson, vörumerkjastjóri Renault hjá BL, við hinn nýja Renault Koleos á bílasýningunni í París í morgun.
Sjö sæta Renault Grand Scenic verður kynntur í nóvember hjá …
Sjö sæta Renault Grand Scenic verður kynntur í nóvember hjá BL.
Sjö sæta Renault Grand Scenic verður kynntur í nóvember hjá …
Sjö sæta Renault Grand Scenic verður kynntur í nóvember hjá BL.
Renault Koleos í París.
Renault Koleos í París.
Rafknúni hugmyndasportbíllinn Renault Trezor á sýningunni í París.
Rafknúni hugmyndasportbíllinn Renault Trezor á sýningunni í París.
Pallbíllinn Renault Alaskan.
Pallbíllinn Renault Alaskan.
mbl.is