5 ára ábyrgð á öllum fólksbílum frá Heklu

Bækistöðvar Heklu er við Laugaveg í Reykjavík.
Bækistöðvar Heklu er við Laugaveg í Reykjavík.

Frá og með deginum í dag fylgir 5 ára ábyrgð öllum nýjum fólksbílum frá Heklu. Ábyrgðin gildir fyrir fólksbíla frá Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi.

„Þjónusta við viðskiptavini er okkur einkar hugleikin og aukin ábyrgð á fólksbílum er liður í því að auka þjónustuna enn frekar,“ segir Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu í tilkynningu.

„Við innleiddum þessa ábyrgð hjá Mitsubishi fyrir rúmu ári og Audi í upphafi árs við mikla ánægju viðskiptavina. Nú hefur opnast sá möguleiki frá framleiðendum að bjóða einnig uppá 5 ára ábyrgð fyrir aðra fólksbíla frá Heklu. Við tilkynnum því í dag með mikilli ánægju að 5 ára ábyrgð fylgir öllum nýjum fólksbílum frá Heklu frá og með 1. október 2016,“ bætir Friðbert við.

Um ábyrgðarskilmálana má lesa á heimasíðu Heklu.

mbl.is