Súlur fá nýjan Sprinter

Finnbogi Óskar Ómarsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju, og Magnús …
Finnbogi Óskar Ómarsson, sölustjóri Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Öskju, og Magnús Viðar Arnarson, formaður Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri, handsala samninginn.

Björgunarsveitir vinna krefjandi starf þar sem hver mínúta getur skipt máli. Þær þurfa oft að athafna sig við erfiðar aðstæður og kljást við óútreiknanlega veðráttu. Því er mikilvægt að sveitirnar og aðrir viðbragðsaðilar búi við góðan tækjakost og aki bílum sem bregðast ekki á úrslitastundu.

„Þegar liðsmenn Björgunarsveitarinnar Súlna á Akureyri voru að horfa til endurnýjunar á björgunarsveitarbíl þá kom Mercedes-Benz Sprinter strax til greina sem spennandi kostur. Í grunninn er Sprinter einn öflugasti og fjölhæfasti bíll sinnar tegundar. Eftir að sérfræðingar í bílabreytingum hafa farið um hann höndum er hann frábær lausn fyrir björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila,“ segir í tilkynningu.

Á ráðstefnunni Björgun 16, sem fram fer í Hörpu nú um helgina, skrifuðu forsvarsmenn Súlna undir samning um kaup á nýrri Mercedes-Benz Sprinter bifreið fyrir sveitina. Að sölunni komu Bílaumboðið Askja og Höldur - Bílaleiga Akureyrar.

Bíllinn er að gerðinni Sprinter 319 KB, millilangur og lágþekja 4x4. Meðal búnaðar hans er öflug og sparneytin 190 hestafla vél og þróað fjórhjóladrif frá Mercedes-Benz. Þá er bíllinn með öflugum breytingapakka frá Oberaigner sem felst meðal annars í læsingum á millikassa, fram- og afturdrifi.

mbl.is