Aldrei fleiri Golf seldir í landinu

Volkswagen Golf selst í ár sem aldrei fyrr á Íslandi.
Volkswagen Golf selst í ár sem aldrei fyrr á Íslandi.

Yfir 700 Volkswagen Golf hafa verið seldir hjá bílaumboðinu Heklu á árinu og hafa þeir aldrei verið fleiri frá upphafi. Sölumetið var slegið nú í september og því ljóst að árið 2016 verður það langbesta frá upphafi hvað varðar sölu á VW Golf.

Til að kóróna enn frekar árangur Heklu flýgur Skoda Octavia einnig út, en yfir 600 bílar af þeirri tegund hafa verið seldir á fyrstu níu mánuðum ársins, segir í upplýsingum frá Heklu.

September var hagstæður Heklu því skerfur fyrirtækisins í markaði fyrir bíla til einstaklinga og fyrirtækja var 21,65%. Að sögn Heklu er sú hlutdeild sú hæsta fyrir öll bílaumboðin á Íslandi. 

„Hekla heldur svo enn miklu forskoti þegar kemur að vistvænum bílum en í lok september var Hekla með 69,3% markaðshlutdeild í þeim geira. Volkswagen hefur þar yfirburðastöðu með 330 selda bíla en Skoda er í öðru sæti með 114 selda,“ segir í tilkynningu frá Heklu.

Auk þessa hafa hátt í níutíu Audi e-tron tengiltvinnbíla selst það sem af er ári og hátt í 80 Mitsubishi Outlander PHEV.

mbl.is