Verulega misheppnaður framúrakstur

Framúraksturinn misheppnaði endaði ofan á vegatálmum.
Framúraksturinn misheppnaði endaði ofan á vegatálmum.

Óhætt ætti að vera að segja, að ökumanður BMW-bíls af 3-seríunni sem hugðist taka fram úr skólarútu á leið inn í beygju, sé algjör sauður. Alla vega hefur hann ekki þolinmæði í hávegum.

Ekki vildi betur til en svo að BMW-ökumaðurinn ók á fyrirstöðu og síðan upp á steinsteypuklumpa sem aðgreindu akreinar á brautinni þar sem hann lagði til atlögu við rútuna. Þar upp á sat bíllinn fíni hins vegar fastur.

Ætli ökumaðurinn dragi lærdóm af atvikinu sem átti sér stað í borginni Albany í New York ríki?

mbl.is