BL kynnir breyttan Renault Clio

Renault Clio.
Renault Clio.

BL kynnir á laugardaginn kemur, 29. október, nýja útfærslu af Renault Clio. Fer kynning fram á tímabilinu frá klukkan 12 til 16 í húsakynnum umboðsins að Sævarhöfða í Reykjavík.

„Renault Clio hefur fengið hressilega og afar skemmtilega andlitsupplyftingu í samræmi við aðra nýjungar frá Renault,“ segir í tilkynningu um sýninguna.

Clio kom fyrst fram á sjónarsviðið fyrir 26 árum og hafa yfir 13 milljónir bíla selst á tímabilinu sem gerir hann að vinsælasta bíl Renault frá upphafi enda er hann sá mest seldi í sínum flokki í Evrópu og í öðru sæti í heiminum.

Á því varð engin breyting þegar fjórða kynslóðin var kynnt árið 2012 en þá var Clio sá fyrsti frá Renault sem kynntur var í algerlega nýju einkennandi útliti sem síðan var í meginatriðum yfirfært á alla fólksbílalínu Renault. Það sem einkennir breytinguna á Clio sem nú hefur verið gerð á ytra útliti eru C-laga LED ljós og endurhannað og víðara grill sem setur sterkan og nýtískulegan svip á bílinn. Þá hefur afturhluti bílsins einnig verið uppfærður með sama sportlega yfirbragðið að markmiði.

„Staðalbúnaður Clio er vel valinn fyrir bíl í þessum stærðarflokki, en þar má nefna hraðastilli og hraðatakmarkara, aksturstölvu, rafdrifnar rúður að framan og útispegla sem jafnframt eru upphitaðir. Einnig má nefna útihitamæli, fjarstýrðar samlæsingar, hita í framsætum ásamt því sem hægt er að hækka og lækka sæti ökumanns. Hljómtæki eru með tengingu fyrir USB og AUX og fjarstýring er í stýri og fleira. Hægt er að velja um fjölda aukahluta með Clio, svo sem Media Nav með 7“ snertiskjá, leiðsögukerfi með Íslandskorti, loftkælingu, tölvustýrða miðstöð með loftkælingu, regnskynjara og fleira,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Clio er boðinn í tveimur útfærslum, Clio og Clio Sport Tourer, þar sem hægt er að velja um þrjár vélar: 900 rúmsentimetra (cc), 90 hestafla bensínvél við beinskiptinu, 1200 cc, 75 hestafla bensínvél við beinskiptingu og loks 1500 cc, 90 hestafla dísilvél þar sem hægt er að velja um beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Renault Clio kostar frá 2.250 þúsundum króna. Clio Sport Tourer er eingöngu boðinn með 1500 cc, 90 hestafla dísilvél þar sem velja má um beinskiptingu eða sjálfskiptingu og kostar hann frá 2.890 þúsundum króna.

Renault Clio í sportútgáfunni RS.
Renault Clio í sportútgáfunni RS.
Renault Clio árgerð 2017.
Renault Clio árgerð 2017.
mbl.is