Jólapakkadagar í Öskju

Askja kynnir framhjóladrifinn og sjálfskiptan Kia Sportage til leiks í …
Askja kynnir framhjóladrifinn og sjálfskiptan Kia Sportage til leiks í dag.

Það verður sannkölluð fjölskyldustemmning á Jólapakkadögum í Bílaumboðinu Öskju í dag kl. 12 til 16. Veglegur kaupauki fylgir völdum, nýjum Kia bílum.

Í tilkynningu um samkomu þessa segir, að einnig muni Askja sýna og kynna framhjóladrifinn og sjálfskiptan Kia Sportage til leiks. Þá verður nýr Kia Optima Station Wagon einnig til sýnis.

Boðið verður upp á Malt og Appelsín, heitt kakó, smákökur og mandarínur. Allir krakkar fá mynd af sér með jólasveininum kl. 12-14. Einnig verður lukkuleikur Kia þar sem einn gestur getur unnið 50.000 kr. gjafabréf í Kringlunni.

mbl.is