Innkalla Jeep Renegade vegna galla

Jeep Renegade.
Jeep Renegade.

Bílaumboðið Íslensk-Bandaríska ehf. hefur innkallað tvo Jeep Renegade bifreiðar vegna galla í raflögn sem tengist höggskynjara. 

Þetta kemur fram á vef Neytendastofu. Þar segir að bílarnir hafi verið framleiddir frá 14.júní 2014 til og með 16. ágúst 2016.

Þar segir ennfremur að innköllunin sé vegna raflagnar sem tengii höggskynjara að framan við stjórntölvu. Hún geti farið úr sambandi verði bíll fyrir miklu höggi að framan eins og í árekstri.

„Höggskynjarinn sendir merki til tölvu til að virkja loftpúða í stýri, mælaborði og öryggisbelti ef bíll verður fyrir það miklu höggi að framan að ástæða sé til að virkja loftpúða. Sé högg það mikið að raflögn fer úr sambandi er hætta á að merki berist ekki til tölvu um að virkja öryggispúða

Breyta þarf legu og lengd raflagnar til að koma í veg fyrir að höggskynjari geti farið úr sambandi við árekstur,“ segir í tilkynningu.

Jafnframt segir, að Íslensk-Bandaríska muni hafa samband við eigendur þessara bíla. Þá hvetur Neytendastofa bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið séu þeir í vafa.

mbl.is