Fabia sá besti þriðja árið í röð

Skoda Fabia í 1.2 TSI 90 SE útgáfunni er besti …
Skoda Fabia í 1.2 TSI 90 SE útgáfunni er besti smábíllinn 2017 að mati tímaritsins What Car?

Skoda Fabia hlaut á dögunum bresku Car of the Year verðlaunin sem besti smábíll ársins 2017. Það er bílatímaritið What Car? sem stendur fyrir verðlaunaveitingunni sem teljast þau einna virtustu í Bretlandi.

Þetta er þriðja árið í röð sem Fabia skýtur samkeppninni ref fyrir rass og er valinn besti bíllinn í flokki smábíla. Dómnefndin sagði eina af ástæðunum fyrir sigrinum vera þá að hann sé ekki aðeins lipur í borgarakstri heldur einnig þægilegri á vegum úti en margir mun stærri bílar.

Keppnin í flokknum var þrískipt eftir kaupverði. Í flokki smábíla undir 12.000 sterlingspundum varð Dacia Sandero 0.9 TCe Ambiance hlutskarpastur, í flokki 12-15 þúsund punda
Skoda Fabia 1.2 TSI 90 SE og í flokki smábíla sem kostuðu 15.000 pund eða meira Mini 5 door 1.5T Cooper Chili Media. Milli þeirra var svo valinn heildarsigurvegarinn og það hnoss hreppti Fabiabíllinn.

Heildarverðlaun What Car? sem bíll ársins allra flokka hlaut BMW 5 Series 520d SE.

Mikið var lagt í nýtt útlit þriðju kynslóðar Fabia sem kom á markað árið 2014. Hönnunin kristallast í skörpum útlínum, þrívíðri lögun og samspili ljóss og skugga. „Stílhreint útlitið undirstrikar áhrifin frá af tékkneskum kúbisma og kristalshönnun og árið 2015 landaði Skoda Fabia Red Dot-verðlaununum fyrir framúrskarandi vöruhönnun. Þessi eftirsóttu verðlaun eru veitt árlega af sérvalinni dómnefnd sérfræðinga í einni stærstu hönnunarkeppni heims, The Red Dot Design Award, og er enn ein fjöðurin í hatt þessa vinsæla bíls,“ segir í tilkynningu.

mbl.is