Sedan-útgáfa Talisman komin til BL

Renault Talisman í stallbaksútgáfunni eða sedan með öðrum orðum.
Renault Talisman í stallbaksútgáfunni eða sedan með öðrum orðum.

Bílaumaboðið BL hefur fengið sedanútgáfu verðlaunabílsins Renault Talisman í sýningarsalinn við Sævarhöfða.

Þessi útgáfa Talisman, sem kallast Talisman Zen, er búin 1,5 lítra 110 hestafla dísilvél og kostar ódýrari útgáfa hans, beinskiptur bíll, 3.890 þúsundur króna. Einnig er hægt að fá bílinn með sjálfskiptingu og tvöfaldri kúpplingu á 4.990 þúsund króna.

Renault Talisman var kynntur á meginlandi Evrópu síðastliðið sumar og kusu Samtök evrópskra bifreiðasmiða hann þann fallegasta árið 2016. Hér á landi kom skutútgáfa hans (Talisman Intens Grand Tour) á markað síðsumars og sl. haust kusu íslenskir bílablaðamenn hann Bíl ársins 2017.

Ódýrasta útgáfa á skutútgáfu Talisman kostar 4.190 þúsundir króna og sú dýrasta fimm milljónir og níutíu þúsund krónur og er sá bíll með 1,6 lítra, 160 hestafla dísilvél við sjálfskiptingu með tvöfaldri kúpplingu.

mbl.is