„Prentaður“ bíll á ferð

Þrívíddarprentaði bíllinn á ferð í Kína.
Þrívíddarprentaði bíllinn á ferð í Kína. AFP

Þegar óvenjuleg farartæki birtast í umferðinni er ekki nema von að menn reki upp stór augu.

Það á við um þennan bíl sem er þrívíddarprentaður eins og það heitir. Hér er hann á ferð á vegi í héraðinu Hainan í suðurhluta Kína.

Í myndatexta með myndinni er lítið annað um bílinn að fræðast en að hann sé 500 kíló að tómaþyngd. Tók „prentun“ hans tæpa fimm sólarhringa.  

Þrívíddarprentaði bíllinn vakti athygli.
Þrívíddarprentaði bíllinn vakti athygli.
mbl.is