Fallegur í flottu umhverfi

Toyota Hilux Invincible í hinu fagra umhverfi, í Þórsmörk.
Toyota Hilux Invincible í hinu fagra umhverfi, í Þórsmörk. Ljósmynd/Torfi Agnarsson

Nýr Toyota Hilux Invincible verður frumsýndur á árlegri jeppasýningu hjá Toyota í Kauptúni í Garðabæ um komandi laugardag. 

Torfi Agnarsson ljósmyndari hefur kynnt sér gripinn og tók hann þessa gullfallegu mynd sem fylgir fréttinni. Hún er tekin í fallegu íslensku umhverfi í Þórsmörk.

Hilux-bíllinn verður kynntur með nýjum Invincible aukahlutapakka á árlegri jeppasýningu Toyota Kauptúni næstkomandi laugardag, 25. febrúar, klukkan 12 til 16.

Invincible aukahlutapakkinn er að verðmæti 780.000 kr og mun örugglega gleðja Hiluxaðdáendur því hann fylgir með öllum nýjum Hilux án aukakostaðar.  Í pakkanum eru gluggavindhlífar, hlíf undir framstuðara, króm á afturljósum og 33“ breyting.

mbl.is