Hreyfihamlaðir fá sérsniðna bíla

Guðjón, Hjálmar og Hallgrímur fyrir framan nýju V-Class bílana sína. …
Guðjón, Hjálmar og Hallgrímur fyrir framan nýju V-Class bílana sína. Að baki þeim eru fjölskyldumeðlimir og starfsfólk Öryggismiðstöðvarinnar, Bílaumboðsins Öskju og Sjúkratrygginga Íslands sem komu að verkefninu.

Þeir Hallgrímur Einarsson, Guðjón Reykdal Óskarsson og Hjálmar Þorvaldsson fengu á dögunum afhenta þrjá sérhannaða Mercedes-Benz V-Class bíla sem þeir munu keyra sjálfir en þremenningarnir eru allir bundnir við hjólastól.

Að verkefninu koma Sjúkratryggingar Íslands, Öryggismiðstöðin og Bílaumboðið Askja.

V-Class bílarnir eru mjög mikið breyttir eftir þörfum viðkomandi ökumanna sem eru í hjólastólum sínum þegar þeir aka bílunum. Búið er að setja lyftu utan á bílana sem sér um að lyfta ökumönnum upp í þá. Hægt er að færa hið hefðbundna ökumannssæti og renna því til hliðar. Búið er að setja tvo stýripinna sinn hvorum megin við stýrið sem ökumennirnir nota til að stýra bílnum. Á pinnanum er m.a. að finna bensíngjöf og bremsur.

V-Class bílarnir eru sérhannaðir fyrir þremenningana.
V-Class bílarnir eru sérhannaðir fyrir þremenningana.


Öryggismiðstöðin sá um að framkvæma allar breytingar á bílunum og koma fyrir hjálpartækjum í þeim fyrir ökumennina. Jón Eiríksson, verkefnastjóri hjá Öryggismiðstöðinni, segir að það sé langt ferli að breyta einum svona bíl. „Fyrir það fyrsta þarf einstaklingur sem hyggur á svona breytingu að undirgangast ökumat hjá Grensásdeild LSH og þegar því er lokið þarf að huga að stjórnbúnaði sem hentar hverjum og einum.

Við höfum að leiðarljósi að aðlaga bílana eins og hentar hverjum og einum. Öryggismiðstöðin býður upp á mikið úrval af íhlutum til breytinga á bílum fyrir hreyfihamlaða auk þess að bjóða búnað fyrir ferðaþjónustuaðila sem bjóða upp á sérhæfða ferðaþjónustu,“ segir Jón.

Sjúkratryggingar Íslands borga öll hjálpartækin sem sett eru í bílana og breytingarnar við það. Þremenningarnir fá auk þess bílastryk frá Tryggingastofnun Íslands. Þetta er mikið ferli sem viðkomandi fer í gegnum áður en hann fær slíkan bíl. Hann þarf að fara í gegnum mat hvort hann geti yfirhöfuð keyrt bíl og að sjálfsögðu að taka bílpróf eins og allir aðrir ökumenn.

agas@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: